
Hollráð í matjurtagarðinum
Gestum býðst að fræðast um sáningu, útplöntun og umhirðu krydd- og matjurta auk þess sem farið verður yfir ráðleggingar varðandi smádýrin í matjurtagarðinum og hvernig sé hægt að nýta það sem til fellur í jarðvegsgerð. Garðyrkjufræðingar Grasagarðsins sjá um fræðsluna og meðlimir úr Hvönnum, matjurtaklúbbi Garðyrkjufélags Íslands verða á staðnum ásamt fulltrúum Munasafnsins, vísindafólki sem rannsakar örverur og Mervi Luoma sem kynnir hvernig hægt er að nýta ágengar plöntur í matargerð.
