Grasagarður Reykjavíkur
Laugardalur
Sumar kl. 10-19
Vetur kl. 10-15
Dagskrá
Dagskrá í mars og apríl 2024
Laugardagur 6. apríl kl. 11
Fræðsluganga: Flétturnar í garðinum
Við sjáum fléttur í umhverfinu alla daga en flestir vita þó lítið um þessar áhugaverðu lífverur.
Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.
Laugardagur 23. mars kl. 14
Sýningaropnun: Hugsandi haugur / Conscious compound
Sýningin er samstarf meistaranema í myndlist við Listaháskóla Íslands og í listfræði við Háskóla Íslands. Ellefu myndlistarmenn sýna verk sem þeir hafa unnið sérstaklega fyrir samhengi Grasagarðsins og gefa færi á að upplifa samtímamyndlist í lifandi umhverfi.
Tekist er á við hugmyndina um lifandi safn og spurt hversu meðvitaður hugsandi haugur sé. Hugsandi haugur vísar til myndlistarmannanna sem hóps af þenkjandi verum sem bregðast við manngerðum garðinum hvert á sinn hátt og ekki síður við garðinum og kerfa innan hans sem gætu haft meiri meðvitund en við manneskjur höfum hingað til gert ráð fyrir.
Sýningin stendur til 2. apríl
---------------
7. mars 2024 - 14. mars 2024
Eggert Pétursson: Garðablóm
Garðskáli Grasagarðs Reykjavíkur
föstudagur 8. mars 10-18
laugardagur 9. mars 10-18
sunnudagur 10. mars 10-18
mánudagur 11. mars 10-15
þriðjudagur 12. mars 10-15
miðvikudagur 13. mars 10-15
fimmtudagur 14. mars 10-15
Fræðsludagskrá 2024 og sýningar
Janúar
1. janúar – 2. febrúar
Sýning: Þessi djúpi græni blaðlitur: Minningar í lit
20. janúar kl. 10:30-13:00
Leikið með laufum
Mars
Laugardagur 23. mars kl. 14
Sýningaropnun: Hugsandi haugur / Conscious compound
Apríl
23.-28. apríl
Barnamenningarhátíð: Framtíðarblómin
Maí
Miðvikudagur 22. maí kl. 17-18:30
Vorverkin í garðinum
Júní
Hádegisgöngur í júní á föstudögum kl. 12-12:30
Hádegisgöngur á ensku á föstudögum í júní kl. 12:40-13:10
Miðvikudagur 5. júní kl. 20
Alþjóðlegur dagur umhverfisins: Lífið í skóginum
Sunnudagur 16. júní kl. 11
Dagur hinna villtu blóma: Úlfarsárdalur
Gangan hefst við Sæmundarskóla við Biskupsgötu.
Júlí
Hádegisgöngur í júlí á föstudögum kl. 12-12:30
Hádegisgöngur á ensku á föstudögum í júlí kl. 12:40-13:10
Þriðjudagur 30. júlí kl. 20
Jón lærði og náttúrur grasa
Ágúst
Hádegisgöngur í ágúst á föstudögum kl. 12-12:30
Hádegisgöngur á ensku á föstudögum í ágúst kl. 12:40-13:10
Miðvikudagur 14. ágúst kl. 20
Lífið í jarðveginum
Sunnudagur 18. ágúst kl. 13
Blómvendir beint úr beði
Fræðslan fer fram á Árbæjarsafni.
September
Mánudagur 16. september kl. 12
Dagur íslenskrar náttúru: Vaxið úr grasi – samband plantna og smádýra
Október
Föstudagur 18. október kl. 11-17 og laugardagur 19. október kl. 11-17
BragðaGarður
Nóvember
Þriðjudagur 5. nóvember kl. 17
Upphitaði garðskálinn
Desember
Þriðjudagur 3. desember kl. 17
Jólablóm
-------
Allir viðburðir hefjast við aðalinngang Grasagarðsins nema annað sé tekið fram. Upplýsingar um fleiri viðburði garðsins er að finna á grasagardur.is og facebook.com/grasagardur og í síma 411-8650.
-----------
Loftslagslabbið
Vissir þú að elsta plantan í Grasagarðinum hefur bundið kolefni sem nemur kolefnisbruna meðalfólksbíls í 3 mánuði og 24 daga?
Loftslagslabbið er sýning/gönguferð um Grasagarðinn þar sem fjallað er um loftslagsmál út frá safngripum garðsins (plöntunum) og búsvæðum og hlutverki þeirra í að minnka loftslagsvána.
Sýningin er styrkt af Loftslagssjóði og stendur til 30. september 2023.
Landkönnuðurinn
Fjölskyldugönguferðin Landkönnuðinn hér í Grasagarðinum, er í samstarfi við sænska sendiráðið á Íslandi. Við fetum í fótspor grasafræðingsins Daníels Solander sem fæddist í Svíþjóð árið 1733. Daníel elskaði plöntur og lærði um þær hjá frægasta grasafræðingi allra tíma, Carli Linnaeusi.
Daníel fannst svo skemmtilegt að skoða plöntur að hann fór í langt ferðalag á seglskipi í kringum hnöttinn, frá Evrópu til Suður-Ameríku, Eyjaálfu og Afríku. Daníel hefur lent í allskonar ævintýrum og hann fór einnig í ferð til Íslands. Það eru 250 ár síðan að Daníel kom hingað og safnaði allskonar íslenskum plöntum.
Nú getið þið prófað að vera landkönnuður eins og Daníel. Kort af gönguleiðinni má finna við inngang Café Flóru. Fylgdu kortinu og skoðaðu skiltin á hverjum stað. Landkönnuðurinn verður til 30. september 2023.
Farandsýning um villtar erfðalindir ræktaðra nytjaplantna
Sumrin 2022 og 2023 mun farandsýning um villtar erfðalindir ræktaðra nytjaplantna fara um landið með styrk frá Safnaráði Íslands. Sýningin er afrakstur samstarfs við Norræna genabankann (NordGen) og aðrar norrænar stofnanir. Sýningin er á bæði íslensku og ensku og mun vera í Grasagarðinum til 6. júní 2022. Síðan fer sýningin í Glaumbæ, svo í Lystigarðinn á Akureyri og að lokum í Ásbyrgi.
Villtar erfðalindir ræktaðra nytjaplantna eru tegundir plantna sem eru formæður nytjaplantna eða skyldar tegundir. Ólíkt nytjaplöntunum þá þurfa þessar villtu tegundir að lifa af við ólíkar aðstæður án aðkomu og viðhalds mannanna; þær vaxa því villtar í náttúrunni. Með áframhaldandi loftslagsbreytingum breytast skilyrði landbúnaðar. Til að mæta þessum breytingum mun verða þörf á nýjum eiginleikum hjá ræktuðum nytjaplöntum og þá þarf að vera hægt að leita í erfðafjölbreytni villtra plantna. Kynbótafræðingar dagsins í dag og framtíðarinnar geta leitað til þessara villtu stofna í leit að eiginleikum sem munu nýtast til að rækta fram ný yrki nytjaplantna.
Á Íslandi er fjölbreytileiki fóðurgrasa og berjategunda einkar mikill og má hér finna ættingja hveitis ásamt vallarfoxgrasi, bláberjum, jarðarberjum og kúmeni.
Langar hópinn þinn að fá leiðsögn um Grasagarðinn?
Tekið er á móti skóla-, vinnustaða- og félagahópum allan ársins hring eftir samkomulagi.
Bókanir og nánari upplýsingar má fá í síma 411-8650 virka daga kl. 9-15 eða með því að senda tölvupóst.
Leikskólar og grunnskólar geta bókað eftirfarandi fræðslubakpoka til notkunar á staðnum:
- Plöntubakpoka
- Fuglaskoðunarbakpoka
- Lífveruleitarbakpoka
- Smádýrabakpoka (15. maí - 15. september)
Grasagarðurinn er lifandi safn undir berum himni
Grasagarðurinn var stofnaður árið 1961 og er rekinn af Reykjavíkurborg. Hlutverk garðsins er að varðveita og skrá plöntur til fræðslu, rannsókna og yndisauka.
Grasagarðurinn stendur fyrir fjölbreyttri fræðslu fyrir almenning og skólahópa. Markmið fræðslunnar er að nýta hin margvíslegu plöntusöfn til fræðslu um umhverfið, garðyrkju, grasafræði, dýralíf, garðmenningu og grasnytjar sem og til eflingar útiveru og lýðheilsu.
Kaffi Flóra
Kaffi Flóra býður upp á ljúffengar veitingar með áherslu á hráefni úr eigin ræktun. Kaffihúsið sem er í garðskála Grasagarðsins er opið yfir sumartímann en lokað á veturna.